|

þriðjudagur, maí 16, 2006

Ísland er land fyrir Jóhann

Fyrir þá sem lesa þetta blogg en hafa ekkert heyrt (sem á ekki að vera neinn en ég gæti hafa gleymt einhverjum) þá er ég væntanlegur til landsins bráðlega, nánar tiltekið á föstudaginn klukkan 14:45 með Iceland Express. Ég reyndar getað fengið flug með Iceland Air og komið á fimmtudagskvöldi en ég held að ég hljóti að geta fundið Hótel í London sem kostar minna en 70.000 króna mismunurinn á miðaverðinu. Þá kem ég líka vonandi aðeins betur kvíldur en ella.
Í dag var ég að versla gjafir, bæði handa ykkur heima og svo líka smá handa mér (mest handa ykkur samt) og kom við í Sony Byggingunni þar sem eru til sýnis ekki bara allra nýjustu græjurnar heldur líka hlutir sem eru ekki komnir í sölu.
Mér langar í Háskerpusjónvarp.

|

föstudagur, maí 05, 2006

Ekkert blogg í dag

Nema þið farið að telja þetta með, sem mér persónulega finnst að þið ættuð ekki að gera. Fyrir mér í því hef ég hinar ýmsustu ástæður en ef ég færi að telja þær upp væri komið hið ágætasta blogg og þið gabbið mig nú ekki svo auðveldlega.
Þar sem ég er ekki að blogg held ég að mér sé óhætt að segja að það sé í raun ekkert að frétta af mér.
Nýlega var ég ásakaður um gleymsku, ég vil þó halda því fram að ég hafi aldrei gleymt neinu og bara vegna þess að ég man ekki alltaf allt sem ég veit þá hef ég einstaklega frábært minni. Hinsvegar er ég ekki eins flinkur í því að fylgjast með dögum og verð þess vegna oft ekki var við það þegar ákveðnir dagar koma og fara.
Hlutaðeigandi aðilar verða væntanlega beðnir afsökunar í næsta bloggi.
Sem er eins og alltaf Væntanlegt

|

laugardagur, apríl 22, 2006

Bloggarinn Ógurlegi

Ég er búinn að vera að vandræðast yfir því hvað ég eigi að setja á þetta blogg því það er ekki neitt búið að vera að gerast hérna uppá síðkastið. Svo mundi ég allt í einu að ég var klukkaður í einhverjum af þessum asnalegu klukkuleikjum þannig að ég hendi því bara inn núna.

4 störf sem ég hef unnið við:
Kjötsel: Hvað er nú hægt að segja um kjötsel? Ég vann þarna tvö sumur, fyrra var ég hjá stelpunum að pakka áleggi og eitthvað svoleiðis rugl og seinna sumarið var ég kominn inn til kallana og reyndi að úrbeina síður án þess að úrbeina á mér puttana og á hverjum degi bað ég til guðs um bala af volgu vatni til að kæla hnífinn minn. Aðrir merkir menn sem hafa unnið þarna eru Maggi, Biggi (sem var ekkert að biðja guð eða keisarann um bala heldur náði bara í hann sjálfur), Hjörleifur, Einar Freyr og að sjálfsögðu Faðir minn. Auk þess voru nokkrir menn sem unnu þarna sem eiga skilið smá umtal.
Kiddi: Ungur maður sem mætti nánast alltaf seint, en komst samt léttilega upp með það þar sem hann var fljótasti kjötsagarinn í bænum. Svo fljótur var hann að eini maðurinn sem nokkurtíman hefur getað haldið í við að handlanga kjötið í hann er enginn annar en Hjörleifur. Kiddi æfði karate og skemmti sér oft við það að sína hversu hátt hann gat sparkað og stundum sýndi hann á sér annan kálfan sem var allveg í klessu eftir bruna.
Alli:Alla fannst mjög gaman að spurja fólk allskonar spurninga til að prófa vitneskju þeirra, eða skort þar á... aðalega skort þar á. Ekki endilega af því að flestir sem kjósa að vinna í kjötsel skorti yfirleitt vitneskju um hvernig Júdas hafi drepið sig, eða hver hafi ver keisari á eftir Sesar, heldur af því að ef það kom í ljós að einhver vissi svörinn þá varð einhvernveginn ekki jafn spennandi að spurja þá í sífellu. Sennilega hefur enginn sumarstarfsmaður fengið eins fáar spurningar eins og Einar Freyr en á sínum fyrst degi var hann prófaður í hinu og þessu og átti ekki í miklum erfiðleikum með að finna réttu svörin. Um kvöldið lærði hann svo samviskusamlega undir næsta prófdag en hefur sennilega orðið hálfsár út í Alla því hann fékk aldrei aðra spurningu frá honum.
Annars hafði Alli mest gaman af því að níðast á þeim sem voru vitsmunalega minnimáttar og þá sérstaklega Keisaranum, sem var fastur starfsmaður í vinnslunni. Nú hefur Alli hinsvegar snúið allgjörlega við blaðinu því hann er nú frelsaður maður og hefur tekið Jesú í hjart sér og meira að segja komið á Omega og er án ef betri maður fyrir vikið.
Fleiri menn unnu þarna en þessir tveir setja best í minninu og því læt ég það vera að tala um aðra.

Jæja, þetta er allveg nógu langt fyrir eina færslu þið fáið bara hin störfin og restina af spurningunum/svörunum seinna.

|

fimmtudagur, apríl 13, 2006

Mér er kvef...

Ég er merkilega nokk með frekar gott ónæmiskerfi. Ég kvefast frekar sjaldan og veikist en sjaldnar. Núna er ég hinsvegar með eitt versta kvef sem ég hef fengið í langan tíma, var í tvo daga mjög slappur og sloj og í raun og veru bara veikur, síðustu daga hef ég ekii verið neitt sloj að ráði en er kominn með þessa líka fínu hálsbólgu.
Þetta væri ekki eins slæmt ef páskaeggið mitt væri ekki komið (hér eru engir páskar ég borða það þegar mér sýnist). En í mínu slæma ástandi er ekkert sérstaklega varið í eggið.
Ég fékk hinsvegar ekki kókaínið sem þið settuð í eggið. Japönsk Tollayfirvöld sáu við ykkur og opnuðu pakkann og brutu eggið, ég geri amk ráð fyrir því því pappírinn (sem lokar plastinu, og sýnir hverskonar egg þetta er) lá ofan á mölbrotnu egginu. Sem betur fer er ætti þetta ekki að koma niður á bragðinu, þeas þegar ég losna við kvefið.

Bebba setti eftirfarandi kvörtun í síðasta komment:
Hei! Hvar eru ferskeytlurnar? Þú verður að publisha fleiri blogg á síðunni svo við sjáum þær!

Ég ætla að velja sigurvegara von bráðar og hvet ég því alla til að leggja inn skeytlu og eiga möguleika á stórglæsilegum vinningum Hjörleifur, Jóhann og Jóhann eru þeir einu sem hafa skeytlað, ég vil endilega sjá fleiri!!!

Ef ég hefði heila bók
(í) hana myndi rita

Kommon pípúl! Björk? Einar? Einar? Maggi? Ásgeir? Róbert? Ómar? Gulla? Anna? Óðinn?

Ásgeir hefur þegar brugðist við:

Ef ég hefði heila bók
(í) hana myndi rita.
Um heilan eða hálfan lók,
runkandi mér til hita.

Ég sjálfur kom með þessa:

Ef ég hefði heila bók
(í) hana myndi rita:
(um) kaptein morgan oní kók
köfun, sól og svita

Hjörleifur hafði verið með svipaða (sem ég mundi ekki þegar ég samdi mína):

Ef ég hefði heila bók
í hana myndi rita
um ljúfan Kaftein M. í kók
sem kroppnum færir hita.

Pabbi gerðist svo merkilegur að koma með tvær:

Ef ég hefði heila bók
(í) hana myndi rita
Að lestarferð er ekkert jók
eg ætti það að vita

Ef ég hefði heila bók
(í) hana myndi rita
Um spítala sem tíma tók
taugastríð og svita

|

mánudagur, apríl 10, 2006

Loksins, loksins




Áður en beðið er fyrir í musterinu á að þrífa hendur og munn þarna.



Sapporo úr rúmlega 500 metra hæð



þetta er klukkuhús (áður klukkuturn) í Sapporo



Sædýrasafnið. Parísarhjólið var lokað.



Birnirnir skenmmmtilegu í N.B.Onsen



Þetta vatn er víst eitt það gegnsæasta í heiminum...



Ég með sólgleraugun.



Slóðin sem ég sökk aftur og aftur niður í.

Það er komið fullt af nýju fólki hingað, sem þýðir að það er orðið töluvert erfiðara að komast í tölvurnar hérna :(

|

laugardagur, apríl 01, 2006

Dagur 11/dagur 10

Ég vaknaði nokkrum sinnum um nóttina í bátnum og leið alltaf aðeins betur. Ég fór að lokum á fætur um hálftíma fyrir "lendingu" og fékk mér taxa út á lestarstöð, ég var á leiðinni heim. Allar hugmyndir sem voru að skjótast upp í kollinn á mér umað fara til Matzushima eða Aizu Wakamatsu voru afgreiddar með einu einföldu: "Ég nenn því ekki".
Núna er ég í Shroishi að bíða eftir lest til Fukushima sem kemur eftir hálftíma. Frá Tokyo komst ég til Fukushima á 6 tímum þannig að ég geri ráð fyrir sama tíma til baka. Sem ætti að skil mér til Tokyo um 8 leitið og og heim í Tokai fyrir 10.
17:10
Heimferðin gengur þokkalega vel. Ætti amk að ná heim fyrir síðustu lest og fyrir 10 spáin gæti enn staðist. Ég er í þessu að leggja af stað frá Kuroiso til Utsunoiya.
17:27
Er að fara í gegnum myndirnar mínar og sá að ég náði á á einni myndinni á Moiwa fjalli (í Sapporo) skylti með hæðinni sem er 531 metri takk fyrir.
19:08
Það var eitthvað að teinunum eða eitthvað frá Utsunomiya til Omiya þannig að öllum á þeirri leið var hent uppí Shinkansen frítt. Ég er núna kominn í lest á leiðinni til Shinjuku, þaðan kemst ég beint til Tokai. Djöfull verður það fínt, byrja á að henda þessu bloggi inn (hey, það var planið þegar ég skrifaði þetta) og svo verður því tekið rólega næstu daga. Annars er þetta sennilega það síðasta sem ég skrifa í þessari ferð. Á ekki von á að fleira fréttnæmt gerist.

Jæja, þessi síðasti partur var nú frekar aumur. En það er engin ástæða til að örvænta þó ferðasögunni sé lokið því að í næstu færslu ætla ég að henda inn nokkrum myndum úr ferðinni.

|

miðvikudagur, mars 29, 2006

Dagur 10/dagur 9

Var ekki í neinu Onsen stuði þegar ég vaknaði um 10 leitið þannig að ég tók bara fyrsta strætó nirðrá lestastöð þaðan sem ég rölti á skandinavíska sædýrasafnið sem var þarna rétt hjá. Ekki að sædýrin hafi verið neitt sérstaklega skandinavísk heldur voru byggingarnar í safninu í gamaldags skandinavískum stíl (svona eins og öll flottu húsin í köben).
Fyrsta sjóið byrjaði fljótlega eftir að ég kom, en það var ganga mörgæsanna. Þá ganga konungsmörgæsirnar (90cm háar, næststæðstar á eftir keisaramörgæsunum) fyrirfram ákveðna leið um garðinn (sem er ekki svo stór). Eftir gönguna var svo komið að sæljónunum sem voru með svaka flott sjó en eftir það var löng bið eftir höfrungasjóið (það síðasta) þannig að ég skoðaði safnið sjálft og túristabúðirnar. Í búðunum var m.a. hægt að kaupa skandinavískt áfengi (td Absalute vodka) og skandinavískt nammi (td Haribo) en þó ekki lakkrís eða sterkan brjóstsykur. Höfrungasjóið var fínt og eftir það fór ég aftur uppá lestarstöð og til Tomakomai þaðan sem ég fór í ferjuna til Sendai ég er núna (þegar þetta er skrifað) í henni.
Mér finnst reyndar asnalegt að kalla bát sem er 192.5 m langur, 27 m breiður, 13,937 tonn á þyngd, með lítinn bíó sal, lítinn spilakassasal, lamennningsbaðhús, bar, veitingahús, svefnrými fyrir 822 manns og farrými fyrir 150 fólksbíla og og 176 vörubíl, ferju.
23:00
Hvað er málið með mig og báta? Ég finn ekki lengur fyrir bíl eða flugveiki en verð sjóveikur í 200 metra 14 þúsund tonna báti sem titrar meira en hann vaggar. Svo kemur þetta svo seint að það er búið að loka sjoppunni þannig að ég fæ engar sjóveikistöflur.
Hvar eru sjóveikistöflusjálfsalarnir? Sá sem hefur fundið alla þessa sniðugu sjálfsala sem maður heyrir um hefur sennilega útbúið þá sjálfur því þó það séu milljón trilljón sjálfsalar í japan (og sirka 20 af þeim í þessari ferju) eru 99,9% af þeim drykkjar eða tóbakkssjálfsalar.
Mér langar í lest :(
Líður manni betur eftir að æla af sjóveiki? Manni líður amk betur ef maður er fullur/þunnur/veikur en hvað með sjóveikur? Ég bara man það ekki. Hýtur það ekki að vera? Ég held amk að ég komist fljótlega að því.
skrifað daginn eftir
Ég lagaðist ekkert við það að æla, en ég held að það hafi verið aðalega út af því að ég ældi ekki. Eftir að hafa lagast og versnað til skiptist í rúman klukkutíma eftir skrifin mín ákvað ég að reyna að sofna bara. Svefnaðstaðan sem ég var með var stór salur með um hundrað dínum á gólfinu, hann var þó ekki nema kvartfullur og engin sem hraut af neinu ráði. Það var gott því eyrnatapparnir sem ég keypti voru svona nýtískueyrnatappar sem eru sérstaklega hannaðir til að meiða mann í eyrunum. Ég komst fljótlega að því að ef ég lá á hægri hliðinni þá hélst maginn þokkalegur og að lokum náði ég að sofna.

Smá aukalega

Fyrir þá sem ekki vita þá sem ekki vita þá er ég með vægan húðsjúkdóm sem lýsir sér í því að ég fæ appelsínugula flekki á líkaman (aðalega bringu og axlir) þetta er ekki allvarlegra en það að ég þarf bara að þvo mér með sérstakri sápu sem heitir sel sun þegar þessir blettir gera vart við sig. Hinsvegar á meðan ég hef verið hér í japan hef ég ekki verið með þessa sápu og í raun ekki leitast mikið eftir henni. Síðastliðna tvo mánuði hef ég samt alltaf þegar ég hef farið í sturtu ákveðið að fara og kaupa Sel Sun en gleymi því um leið og ég er klæddur.
Þegar ég var nýkominn heim úr ferðinni tók ég eftir því í minni fyrstu sturtu tók ég eftir því (og gladdist mjög) að ég var orðinn allveg blettalaus. Vil ég þakka baðinu mínu í NB Onsen fyrir þetta því ég er nokkuð viss um að það sé það sem hafi reddað þessu.